Aurskriðan endaði við snúrustaurinn

Skriðan sem féll fyrir ofan bæinn Hof í Öræfum endaði …
Skriðan sem féll fyrir ofan bæinn Hof í Öræfum endaði aðeins örfáa metra frá bænum. Ljósmynd/Brynja Kristjánsdóttir

Aurskriða féll í gærkvöldi við bæinn Hof í Öræfum og endaði hún við snúrustaurinn við bæinn, aðeins nokkra metra frá íbúðarhúsinu. Mikið var um stóra steina og grjóthnullunga í skriðunni auk þess sem birkitré, sem stóðu í litlum birkiskógi fyrir ofan húsið, voru mörg hver rifin upp með rótum.

Aurskriðan kom niður úr Hofsfjallinu og lenti á varnargarðinum fyrir …
Aurskriðan kom niður úr Hofsfjallinu og lenti á varnargarðinum fyrir ofan útihúsin. Fór hún svo alla leið niður að íbúðarhúsinu þar sem hún stöðvaðist. Ljósmynd/Brynja Kristjánsdóttir

Á bænum búa þau Örn Bergsson og Brynja Kristjánsdóttir. Örn segir í samtali við mbl.is að skriðan hafi komið úr Hofsfjallinu fyrir ofan bæinn og fallið niður Litlahvamm. Þetta er ekki í fyrsta skiptið sem flóð kemur niður hlíðina, en Örn segir að á milli 1940 og 1950 hafi stórt aurflóð komið niður hana og endað á gömlum torfhúsum sem voru notuð undir fé og hesta. Þá hafi síðan reglulega komið minni spýjur þarna niður.

Aur, grjóthnullungar og heil tré sem rifnuðu upp með rótum …
Aur, grjóthnullungar og heil tré sem rifnuðu upp með rótum var að finna í skriðunni. Ljósmynd/Brynja Kristjánsdóttir

Vegna þessa hafði verið gerður farvegur fyrir flóðið með því að ryðja upp varnargarði. Örn segir að farvegurinn hafi alveg fyllst af aur og krapa og eitthvað hafi farið yfir garðinn. Flóðið hafi svo endað nokkra metra frá íbúðarhúsinu. Flóðið var nokkuð stórt að sögn Arnar og um 100 metra breitt þar sem það breiddi úr sér neðst.

„Maður veit um söguna, þannig að maður er alltaf á varðbergi þegar mikill snjór er og það gerir hláku,“ segir Örn. Hann segir að nú þurfi að grafa upp úr farveginum til að koma upp vörnum fyrir bæinn á ný, en hann telur að hættan sé liðin hjá í þetta skiptið.

Flóðið endaði rétt við íbúðarhúsið.
Flóðið endaði rétt við íbúðarhúsið. Ljósmynd/Brynja Kristjánsdóttir

Brynja segir að flóðið hafi fallið um klukkan sex í gærkvöldi og að það hafi loks endað við snúrustaurinn í garðinum við húsið. Þau hafi í kjölfarið ákveðið að gista ekki heima í nótt. Hún segir að auk grjóthnullunga hafi í flóðinu verið tré sem höfðu rifnað upp með rótum. Meðfylgjandi myndir tók Brynja í gær af ummerkjunum.

map.is
map.is map.is

Fyrir nokkrum áratugum var birkiskógi sáð fyrir ofan bæinn, en Brynja segir ljóst að trén hafi að einhverju leyti náð að hemja skriðuna. Hún vill þó ekki segja til um hvort skógurinn hafi haft úrslitaáhrif um hvort skriðan stoppaði áður en hún fór á íbúðarhúsið.

Flóðið kom niður úr Hofsfjallinu. Birkiskóg var sáð í hlíðina …
Flóðið kom niður úr Hofsfjallinu. Birkiskóg var sáð í hlíðina fyrir nokkrum áratugum sem hafði mögulega eitthvað að gera með að hemja flóðið. Ljósmynd/Brynja Kristjánsdóttir
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert