Karlmaður á áttræðisaldri lést í umferðarslysi á gatnamótum Kauptúns og Urriðaholtsstrætis í Garðabæ í dag. Varð maðurinn fyrir bifreið er hann gekk yfir götuna. Tilkynning um slysið barst lögreglu kl. 07:54.
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu og rannsóknarnefnd samgönguslysa rannsaka tildrög slyssins, en ekki er unnt að greina frá nafni hins látna að svo stöddu, að því er segir í tilkynningu.
Lögreglan biður þá sem kunna að hafa orðið vitni að slysinu að hafa samband í síma 444 1000, en einnig má senda upplýsingar í tölvupósti á netfangið helgig@lrh.is