Í mesta lagi 100 metra breitt

Myndir af gosinu í Geldingadal við Fagradalsfjall sem voru teknar …
Myndir af gosinu í Geldingadal við Fagradalsfjall sem voru teknar í morgun. mbl.is/Kristinn Magnússon

Umfang gossins í Geldingadal við Fagradalsfjall á Reykjanesskaga er lítið og hefur virkni þess minnkað heldur frá því í gærkvöldi. Lítið er um kvikustróka upp úr sprungunni og þekur hraunflæðið svæði sem er í mesta lagi um 100 metra breitt. Unnið er að kortlagningu svæðisins. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Veðurstofunni.

Gosið er þessa stundina afmarkað við mjög lítið svæði ofan í dalverpi og telur Veðurstofan að afar ólíklegt sé að hraunflæði komi til með að valda tjóni. Þá mældist engin gosaska frá eldstöðvunum og fyrsta mat er að ekki sé mikil hætta á að gasmengun muni valda miklum óþægindum nema næst gosstöðvunum. 

Varar Veðurstofan almenning við að nálgast gosstöðvarnar. „Það er mikilvægt að taka það fram að svæðið næst gosstöðvunum er hættusvæði og alls ekki ráðlegt að vera á ferðinni þar. Í landslaginu er mikið um lægðir þar sem gas gæti leynst og verið hættulegt fólki.


 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert