Að minnsta kosti 15 smit greindust

Fólk á leið í sýnatöku vegna Covid-19.
Fólk á leið í sýnatöku vegna Covid-19. mbl.is/Kristinn Magnússon

Í það minnsta fimmtán greindust smitaðir af kórónuveirunni innanlands í gær, að sögn Kára Stefánssonar forstjóra Íslenskrar erfðagreiningar. Hann telur þörf á að loka „öllu“, líkamsræktarstöðvum, sundlaugum, hárgreiðslustofum o.s.frv.

Boðað var til aukaupplýsingafundar vegna stöðunnar á faraldrinum í dag en klukkan rétt rúmlega tíu var hætt við fundinn.

„Ég held að við séum komin á þann stað að við verðum að loka öllu núna, einfaldlega öllu,“ segir Kári. 

Spurður hvort hann eigi þar við líkamsræktarstöðvar, sundlaugar, hárgreiðslustofur og sambærilega starfsemi jánkar Kári því. 

Vísir greindi fyrst frá fjölda innanlandssmita.

Nokk­ur inn­an­lands­smit greind­ust utan sótt­kví­ar á föstu­dag og um helg­ina. Þá greind­ist eitt smit á mánu­dag inn­an sótt­kví­ar. Þórólf­ur Guðnason sóttvarnalæknir hef­ur sagt að um sam­fé­lags­legt smit sé að ræða. Þá er út­lit fyr­ir að rót smit­anna sé enn óþekkt í ein­hverj­um til­vik­um. 

Núverandi takmörkun á samkomum vegna farsóttar gildir til og með 9. apríl. Þórólfur hefur þó sagt að mögulega verði gerðar breytingar þar á vegna þróunar faraldursins. 

Fréttin verður uppfærð

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert