Sjö fá 100.000 krónur

Einn hepp­inn í áskrift vann þriðja vinning í Víkinglottó í kvöld eða rúmlega 1,8 milljónir. Eng­inn fékk þó fyrsta vinn­ing sem var rúm­lega tveir milljarðar og sömuleiðis fékk enginn annan vinning sem stóð í rúmum 35 milljónum.

Sjö heppnir voru þó með fjór­ar rétt­ar jóker­töl­ur í röð og fær hver og einn í sinn hlut 100 þúsund krón­ur. Enginn var með fimm réttar jókertölur í röð.

Miðarn­ir voru keypt­ir á bensínsölunni Klettum í Vestmannaeyjum, Kjörbúðinni Grundarfriði, Vídeómarkaðnum í Kópavogi og í Fjarðarkaupum í Hafnarfirði. En þrír miðar voru í áskrift. 

Vinn­ingstöl­ur kvölds­ins: 11, 12, 14, 15, 27, 39.

Jóker­töl­ur: 8, 3, 7, 6, 7.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert