Hvöss suðaustanátt og rigning

Kort/Veðurstofa Íslands

Sunnan- eða suðvestanátt í dag, 8-13 m/s, og dálítil rigning eða skúrir en áfram þurrt og bjart veður norðaustan- og austanlands. Milt í veðri, hiti víða 5 til 10 stig.

Á fimmtudag gengur svo í hvassa suðaustanátt, 13-20 m/s, með talsverðri rigningu um landið sunnanvert. Einnig rigning vestanlands en þurrt og bjartara yfir fyrir norðan. Hlýnar aðeins, hiti að 14 stigum norðan til að því er segir í hugleiðingum veðurfræðings á Veðurstofu Íslands.

Veðurhorfur á landinu næstu daga

Á fimmtudag:
Suðaustan 13-20 m/s og víða talsverð rigning, en úrkomuminna norðan- og norðaustanlands. Hiti 6 til 14 stig, hlýjast á Norðurlandi.

Á föstudag:
Sunnan og suðvestan 8-15, en heldur hægari vindur síðdegis. Væta með köflum, en þurrt á Norður- og Austurlandi. Hiti frá 4 stigum vestast á landinu, upp í 13 stig á norðausturhorninu.

Á laugardag:
Sunnan 5-10 og skúrir, en áfram þurrt á Norður- og Austurlandi. Hiti 3 til 9 stig. Breytileg átt um kvöldið, rigning eða slydda víða um land og kólnar heldur.

Á sunnudag og mánudag:
Suðvestanátt með skúrum eða éljum, en léttskýjað norðaustan- og austanlands. Hiti 1 til 6 stig.

Á þriðjudag:
Útlit fyrir minnkandi suðvestanátt, úrkomulítið veður og áfram svipaðan hita.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert