Austurvöllur fær nýja ásýnd

Veggurinn við Austurstræti víkur fyrir mannlífinu.
Veggurinn við Austurstræti víkur fyrir mannlífinu. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Vegfarendur við Austurvöll hafa eflaust tekið eftir því að hlaðnir veggir við torgið hafa verið teknir niður. Í stað þeirra verður hellulagt og blómabeðum komið fyrir.

Pawel Bartoszek, borgarfulltrúi Viðreisnar og staðgengill formanns skipulags- og samgönguráðs, segir að hugmyndin um að opna betur inn á torgið hafi reglulega komið upp og nú hafi hún loksins orðið að veruleika.

Í umfjöllun um áform þessi í Morgunblaðinu í dag segir hann að upprunalega hafi veggirnir verið hlaðnir til að skýla Austurvelli fyrir umferð bíla í gegnum Vallarstræti. Lokað hefur verið fyrir umferð í gegnum Vallarstræti í áratugi og ekki er stefnt að því að opna fyrir hana aftur. Veggirnir hafa því staðið í ákveðnu tilgangsleysi við torgið lengi.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert