Sennilega ráðist í tilviljanakennda bólusetningu

Frá bólusetningu gegn Covid-19 í Laugardaslshöll. 10.000 manns mæta í …
Frá bólusetningu gegn Covid-19 í Laugardaslshöll. 10.000 manns mæta í bólusetningu þar á morgun. mbl.is/Kristinn Magnússon

Þórólfur Guðnason segir sennilegt að þegar bólusetningu forgangshópa lýkur verði ekki bólusett eftir aldurshópum heldur verði fólk boðað tilviljanakennt í bólusetningu. Nú hafa elstu aldurshóparnir sem voru í forgangi í bólusetningu gegn Covid-19 fengið slíka og gengur vel að bólusetja aðra forgangshópa. 

Hefur verið tekin ákvörðun um það hvernig forgangsröðunin verður eftir að forgangshópar hafa verið bólusettir?

„Það er svolítið í það. Við munum sennilega ekki raða niður eftir aldurshópum heldur bólusetja tilviljanakennt, boða fólk í bólusetningu þannig,“ segir Þórólfur í samtali við mbl.is.

Eins og mbl.is greindi frá í síðustu viku sýna ný hermilíkön þriggja vís­inda­manna Íslenskr­ar erfðagrein­ing­ar að hjarðónæmi hefði náðst hraðar á Íslandi ef bólu­sett hefði verið í hækk­andi ald­urs­röð í miðri þriðju bylgju far­ald­urs­ins, en ekki lækk­andi ald­urs­röð eins og síðan var gert. Einnig myndi hjarðónæmi nást hraðar ef bólu­sett hefði verið af hand­hófi á sama tíma. 

Kalla inn eftir sjúkdómum, ekki aldri

Bólusetning fólks með undirliggjandi sjúkdóma stendur nú yfir en þar er kallað inn eftir sjúkdómum, ekki aldri. 

„Þannig að það verður nokkuð tilviljanakennt í sambandi við aldurinn. Þannig verður það líka þegar t.d. kennarar og fólk í félagsþjónustunni verður kallað inn; það verður ekki aldursskipt, það verður ekki farið í elsta aldurshópinn og niður heldur verður það nokkuð tilviljanakennt. Við munum reyna að slá tvær flugur í einu höggi; það er að segja að ná einstaklingunum sem eru í forgangi og á sama tíma að vinna eins vel í hjarðónæminu og mögulegt er,“ segir Þórólfur. 

Stendur allt og fellur með magninu

Aðspurður segist hann vona að bólusetningu forgangshópa ljúki á næstu vikum. 

„En þetta stendur allt og fellur með því hversu mikið bóluefni við fáum. Við erum ekki búin að fá dreifingarlistann frá AstraZeneca fyrir maí og júní þannig að nú erum við að nota Pfizer mest. Vonandi förum við að fá meira bóluefni frá hinum á næstunni.“

Líða fer að annarri bólusetningu fólks sem fékk fyrsta skammtinn af bóluefni AstraZeneca en er nú ekki í þeim hópi sem bóluefnið er ætlað. Þetta fólk mun geta valið að fá aftur AstraZeneca en að öðrum kosti skammt af öðru bóluefni.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert