Vefur Alþingis liggur niðri

Vefur Alþingis liggur niðri sem stendur.
Vefur Alþingis liggur niðri sem stendur. skjáskot/althingi.is

Vefur Alþingis liggur nú niðri, en þegar reynt er að fara inn á vefinn mætir notendum villuskilaboð um að ekki sé hægt að tengjast síðunni.

Samkvæmt upplýsingum frá Alþingi varð bilun í netþjóni og er nú unnið að viðgerð.

Þingfundur á að hefjast klukkan 13:00, en ekki er vitað til þess að bilunin muni hafa áhrif á þingfundinn.

Uppfært: Vefurinn er aftur kominn í lag.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert