Það eru í grunninn litlar breytingar á veðri næstu daga frá því sem verið hefur undanfarið. Víðáttumikil hæð er enn þá yfir Grænlandi og við sitjum í köldum loftmassa af norðlægum uppruna. Íbúar sunnan heiða geta þó reynt að láta fara vel um sig í sólskini og skjóli undir vegg segir í hugleiðingum veðurfræðings á Veðurstofu Íslands.
„Í dag er útlit fyrir norðlæga eða breytilega átt 3-10 m/s. Yfirleitt bjart veður vestanlands, en skýjað að mestu annars staðar og líkur á éljum. Taka ber fram að í kvöld og fram á nótt er möguleiki á slydduéljum eða éljum á höfuðborgarsvæðinu og Reykjanesskaga.
Á morgun er spáð norðaustanátt, víða á bilinu 5-10 m/s. Léttir til sunnanlands og verður því yfirleitt léttskýjað um landið sunnan- og vestanvert. Norðaustan til verða él áfram viðloðandi.
Hitinn í dag og á morgun verður á bilinu 0 til 8 stig yfir daginn, mildast á Suðvesturlandi. Horfur eru á næturfrosti um allt land,“ segir enn fremur í hugleiðingum veðurfræðings.
Norðlæg eða breytileg átt 3-10 m/s. Yfirleitt bjart veður vestanlands en skýjað að mestu annars staðar og líkur á éljum.
Norðaustanátt á morgun, víða 5-10 m/s. Léttskýjað um landið sunnan- og vestanvert en él norðaustan til.
Hiti 0 til 8 stig yfir daginn, mildast á Suðvesturlandi. Næturfrost um allt land.
Á laugardag:
Norðaustan 3-10 m/s. Léttskýjað sunnan og vestan til á landinu, hiti 3 til 8 stig að deginum. Skýjað og lítils háttar él norðaustan til og hiti um frostmark.
Á sunnudag:
Norðaustan 5-13 m/s. Dálítil él á austanverðu landinu en víða bjart vestan til. Hiti breytist lítið.
Á mánudag, þriðjudag og miðvikudag:
Norðan og norðaustan 3-10 m/s. Skýjað að mestu á Norður- og Austurlandi og sums staðar svolítil él, hiti 0 til 3 stig. Léttskýjað sunnan- og vestanlands og hiti 3 til 9 stig. Næturfrost víða um land.
Á fimmtudag (uppstigningardag):
Hæg breytileg átt og víða léttskýjað en norðan 5-10 og skýjað með austurströndinni. Hiti frá frostmarki á Austurlandi, upp í 10 stig að deginum um landið suðvestanvert.