Slökkvilið standa á verði eftir langvarandi þurrka

mbl.is/Sigurður Unnar

Greiðlega gekk að slökkva gróðureld í gær, sem upp kom í hrauninu sem skilur að Garðabæ og Hafnarfjörð, það er rétt norðan við slökkvistöðina við Skútahraun.

Tiltækt lið notaði klöppur og vatn við slökkvistarfið sem tók ekki langan tíma. Slökkvilið á sunnan- og vestanverðu landinu eru vel á verði nú vegna hættu á eldum í gróðri.

Þar hafa sjónir sérstaklega beinst að Skorradal sem við núverandi aðstæður eftir langvarandi þurrviðri er lýst sem púðurtunnu. Vætu er þörf, sem þó er ekki í kortum allra næstu daga, að því er fram kemur  í Morgunblaðinu í dag.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert