Samherji hafi blandað sér í prófkjörið

Njáll Trausti Friðbertsson sækist eftir oddvitasæti Sjálfstæðisflokksins í Norðausturkjördæmi.
Njáll Trausti Friðbertsson sækist eftir oddvitasæti Sjálfstæðisflokksins í Norðausturkjördæmi. Samsett mynd

„Skæruliðadeild“ Samherja reyndi að beita áhrifum sínum innan Sjálfstæðisflokksins til að koma í veg fyrir að Njáll Trausti Friðbertsson fengi oddvitasæti í komandi prófkjöri flokksins í Norðausturkjördæmi, ef marka má heimildir Kjarnans.

Fram kemur í umfjöllun Kjarnans að Arna Bryndís McClure, yfirlögfræðingur Samherja, og Páll Steingrímsson skipstjóri hafi rætt sín á milli um prófkjörið. Í því samtali hafi Páll hafi greint frá því að Þorsteinn Már Baldvinsson forstjóri Samherja vildi ekki sjá Njál Trausta í efsta sæti listans.

Arna hafi þá lýst því yfir að enginn vilji Njál í fyrsta sætið og Páll lofað að ræða við áhrifamenn innan flokksins um málið. Tvímenningarnir hafi því næst talað um að „koma saman nothæfum lista fyrir kjördæmið“, en samkvæmt Kjarnanum hafi einungis einn þeirra frambjóðenda sem þau röðuðu á sinn lista endað í framboði í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í kjördæminu.

Njáll Trausti Friðbertsson er sitjandi þingmaður Sjálfstæðisflokksins í Norðausturkjördæmi, en hann sækist eftir oddvitasætinu sem Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, skilur eftir sig. Prófkjör flokksins í Norðausturkjördæmi fer fram laugardaginn 29. maí, en Kristján Þór hefur ákveðið að sækjast ekki eftir endurkjöri.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert