Kjarnafjölskyldum fjölgar milli ára

Börn að leik við tjörnina í Breiðholti. Myndin tengist fréttinni …
Börn að leik við tjörnina í Breiðholti. Myndin tengist fréttinni ekki beint. mbl.is/Eggert Jóhannesson

1. janúar þessa árs voru kjarnafjölskyldur 86.300 á landinu og hafði þeim fjölgað um 1.632 frá árinu áður. Yfir sama tímabil fjölgaði barnafjölskyldum um 840 og barnlausum hjónaböndum og sambúðum um 713 á meðan einhleypum fjölgaði um 401. 

Fram kemur í tilkynningu frá Hagstofu Íslands að unnið hafi verið að nýrri skilgreiningu á kjarnafjölskyldum. 

Í fyrri skilgreiningu töldust einstaklingar 18 ára og eldri ekki lengur með fjölskyldum sínum heldur sem einstaklingar utan fjölskyldu. Þetta gerðist jafnvel án þess að stofnað væri til nýrrar fjölskyldu eða að flutningur einstaklingsins frá kjarnafjölskyldu ætti sér stað. Nýja skilgreiningin færir aldursmörkin upp að 25 árum nema ef einstaklingar stofna eigin fjölskyldu í millitíðinni eða flytja lögheimili sitt frá sinni upprunalegu fjölskyldu.

Fjöldi fólks á vinnualdri hefur nánast staðið í stað undanfarin ár. Í ársbyrjun 2021 var fólk á þessum aldri 66,5% af heildarmannfjöldanum en 66,7% árið 2011. Á síðastliðnum tíu árum hefur hlutfall fólks á aldrinum 0–14 ára lækkað úr 20,1% af þjóðinni í 18,7% en hlutfall fólks sem er 65 ára og eldri hækkað úr 12,3% í 14,7%. Framfærsluhlutfall var 50,2% í ársbyrjun en 49,6% í fyrra. Framfærsluhlutfall er hlutfall ungs fólks (14 ára og yngra) og eldra fólks (65 ára og eldra) af fólki á vinnualdri (15–64 ára). Hækkun þessa hlutfalls stafar einkum af því að fólki á vinnualdri fækkar hlutfallslega.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka