Bílaleigur finna fyrir skorti á bílum

Afhending bíla hefur tafist fram úr hófi. Tafirnar valda vandræðum.
Afhending bíla hefur tafist fram úr hófi. Tafirnar valda vandræðum. mbl.is/Árni Sæberg

Skortur er á bílum hjá bílaleigum landsins. Tafir hafa orðið á afhendingu nýrra bíla vegna kórónuveirufaraldursins. Þessar tafir hafa komið sérstaklega illa við bílaleigur landsins.

„Það er hörgull á nýjum bílum. Afgreiðslufrestur á þeim hefur lengst og umboðin fá ekki allar þær pantanir sem þau vilja,“ sagði Jóhannes Jóhannesson, staðgengill framkvæmdastjóra Bílgreinasambandsins. „Sumir fengu bíla í síðustu viku en ég held að umboðin séu almennt að fá færri bíla en þau gætu selt og afhent á þessum tíma ársins.“ 

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert