Halldóru verði falið að leiða viðræður

Halldóra Mogensen.
Halldóra Mogensen. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Á félagsfundi Pírata, sem fór fram í gærkvöldi, lögðu oddvitar framboðslista Pírata fyrir næstu alþingiskosningar fram erindisbréf sem veitir Halldóru Mogensen, þingkonu Pírata, umboð til að leiða stjórnarmyndunarviðræður að loknum kosningum til Alþingis, í samræmi við tíunda kafla laga Pírata um umboðsmenn.

„Það var enginn mótfallinn því, þetta sigldi því bara í gegn og fer í kosningakerfið hjá grasrótinni,“ segir Halldóra Mogensen, þingflokksformaður Pírata, um félagsfund flokksins sem haldinn var fyrr í gærkvöld. „Ef grasrótin samþykkir þá verður þetta borið undir þingflokkinn og framkvæmdastjórn og ef þetta er samþykkt þar þá er ég komin með umboð.“

Halldóra segir að ekki hafi verið rætt mikið annað á fundinum, nema lítillega um þau áhrif sem faraldurinn hefur á kosningabaráttu Pírata.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert