Hjón með tvö börn unnu 80 milljónir

Eurojackpot.
Eurojackpot.

Þau voru glöð og ánægð hjónin nýgiftu sem komu við hjá Íslenskri getspá til að sækja rúmlega 80 milljóna króna vinning í EuroJackpot. Þau voru meðal fjögurra sem hlutu annan vinning í síðustu viku.

„Ég kaupi stundum lottómiða í vinnunni í gegnum símann en gleymdi því í þetta sinn,“ sagði eiginkonan, að því er kemur fram í tilkynningu.

„Mundi svo allt í einu eftir því að kaupa miða þegar ég var að koma heim og ákvað að kaupa miðann þar sem ég stóð fyrir framan útidyrnar, áður en ég færi inn til mín svo ég myndi örugglega ekki gleyma því að vera með.“

Hjónin búa á Vesturlandi og eiga tvö börn. „Við erum ekki búin að ákveða hvað við gerum við vinninginn, við ætlum að þiggja fjármálaráðgjöf sem Íslensk getspá býður upp á og hlusta á ráðleggingar,“ sögðu þau.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert