Margar sögur í gangi um alvarleikann

Helga Vala Helgadóttir.
Helga Vala Helgadóttir. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Velferðarnefnd Alþingis fundar nú um stöðuna hér á landi vegna heimsfaraldurs kórónuveirunnar. 

„Tilefnið er alvarleg staða í veirumálum. Við þurfum að fá allar bestu upplýsingar sem við getum fengið til að meta stöðuna,“ segir Helga Vala Helgadóttir, formaður nefndarinnar. 

Fátítt er að nefnd­ir Alþing­is komi sam­an utan starfstíma þings­ins, sem hef­ur nú verið slitið fyr­ir alþing­is­kosn­ing­ar í haust.

Fundurinn hófst klukkan 13. Gest­ir fund­ar­ins eru Alma Möller land­lækn­ir og Kamilla Sig­ríður Jós­efs­dótt­ir, staðgeng­ill sótt­varna­lækn­is, Már Krist­ins­son, yf­ir­lækn­ir smit­sjúk­dóma­deild­ar Land­spít­al­ans, Ingi­leif Jóns­dótt­ir, pró­fess­or í ónæm­is­fræðum, og Páll Matth­ías­son, for­stjóri Land­spít­al­ans.

Ekki síst að stöðu Landspítalans

Helga Vala segir að athyglinni verði ekki síst beint að stöðu Landspítalans til að sinna öðrum verkefnum en veirunni. 

„Ég óskaði eftir fundinum og það voru allir sammála því. Við þurfum að fá beinar upplýsingar um stöðuna, bæði stöðuna á Landspítalanum til þess að sinna þeim verkefnum sem þangað berast, og svo auðvitað fá bestu mögulegu upplýsingar um gang veirunnar og hvaða stöðu við stöndum frammi fyrir. Það eru margar sögur í gangi um hversu alvarleg þessi staða er og við sem fastanefnd Alþingis þurfum að fá þessar upplýsingar,“ segir Helga Vala. 

„Það væri óábyrgt af okkur að spyrja ekki þessara spurninga.“

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert