Lögreglan lýsir eftir Guðbrandi Ólafssyni

Lögreglan lýsir eftir Guðbrandi Ólafssyni.
Lögreglan lýsir eftir Guðbrandi Ólafssyni. Ljósmynd/Lögreglan

Lögreglan á Suðurlandi lýsir eftir Guðbrandi Ólafssyni. Síðast er vitað um ferðir hans í nágrenni við Selfoss síðdegis í gær.

Hann var þá á bifreiðinni YB-720, KIA SORENTO, blárri að lit, að því er segir í tilkynningu.

Guðbrandur er klæddur í svartan jakka og bláar gallabuxur. Þeir sem hafa orðið varir við bifreiðina YB-720 og geta gefið upplýsingar um ferðir Guðbrands eru beðnir um að láta lögreglu á Suðurlandi vita í síma 444-2000 eða á netfangið sudurland@logregla.is.

Uppfært: Maðurinn er fundinn. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert