Fátítt að sjá svo dýrar þotur hér á landi

Fátítt er að vélar, líkt og bandarísku B-2-sprengjuþoturnar, hafi viðkomu …
Fátítt er að vélar, líkt og bandarísku B-2-sprengjuþoturnar, hafi viðkomu hér á landi. Ljósmynd/Landhelgisgæslan

Fátítt er að vélar, líkt og bandarísku B-2-herþoturnar, hafi viðkomu hér á landi að sögn Ásgeirs Erlendssonar, upp­lýs­inga­full­trúa Land­helg­is­gæsl­unn­ar. 

Vélarnar þrjár lentu á Keflavíkurflugvelli á mánudag en ein­ung­is 21 slík vél hef­ur verið fram­leidd og er þetta dýr­asta flug­vél sög­unn­ar en hver vél kost­ar yfir 90 millj­arða króna. Þær munu hafa tímabundið aðsetur hér á landi og verða á öryggissvæðinu á Keflavíkurflugvelli næstu daga vegna æfinga.

Ein­ung­is 21 slík vél hefur verið fram­leidd og er þetta …
Ein­ung­is 21 slík vél hefur verið fram­leidd og er þetta dýr­asta flug­vél sög­unn­ar en hver vél kost­ar yfir 90 millj­arða króna. Ljósmynd/Landhelgisgæslan

Æfingin er liður í samvinnu og samstarfi aðildarríkja Atlantshafsbandalagsins. Alls taka 200 liðsmenn bandaríska flug­hers­ins þátt í verk­efn­inu.

Umfangsmikil starfsemi

Að sögn Ásgeirs þarf allur erlendur liðsafli sem starfar á öryggissvæðinu á Keflavíkurflugvelli að gangast undir PCR-próf, fyrir og eftir komu til landsins, auk þess sem flestir eru bólusettir.

„Framkvæmd sóttvarna er unnin í samvinnu við embætti landlæknis og aðra þá er að sóttvörnum koma hér á landi en sértækar reglur gilda um framkvæmdina.“

Taka einhverjir Íslendingar þátt eða koma að æfingunum?  

„Starfsfólk Landhelgisgæslunnar í stjórnstöð Atlantshafsbandalagsins á öryggissvæðinu á Keflavíkurflugvelli kemur að æfingunni eins og á við um öll verkefni á öryggissvæðinu sem það sinnir í umboði utanríkisráðuneytisins. Aðkoma Íslands að þessu verkefni felst að öðru leyti fyrst og fremst í gistiríkjastuðningi,“ segir Ásgeir.

Þá segir hann að loftrýmisgæsla Atlantshafsbandalagsins fari einnig fram frá öryggissvæðinu á Keflavíkurflugvelli um þessar mundir en að auki er þar liðsafli á vegum bandaríska sjóhersins sem sinnir venjubundnu kafbátaeftirliti. Viðdvöl B-2-vélanna hefur hins vegar ekki áhrif á þessi verkefni. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert