Enn og aftur ráðist að iðngreinum

Hilmar Harðarson, formaður Samiðnar.
Hilmar Harðarson, formaður Samiðnar. Ljósmynd/Aðsend

„Staðan er orðin mjög alvarleg þegar 700 umsækjendur fá ekki inngöngu í iðnnám,“ segir í ályktun frá miðstjórn Samiðnar, Sambands iðnfélaga. Þar segir einnig að Samiðn gagnrýni harðlega stöðu iðnnáms hér á landi og að það sé algerlega óviðunandi að 18 ára og eldri eigi nánast engan möguleika á að komast í iðnnám.

„Að sama skapi gerir Samiðn athugasemdir við þá vegferð sem stjórnvöld eru á varðandi löggildingu iðngreina. Þar styður ríkisstjórnin sig við skýrslu OECD varðandi afnám löggildingar í ákveðnum iðngreinum. Það vekur athygli að OECD horfði í skýrslu sinni eingöngu til iðngreina, en ekki annarra stétta sem búa við lögverndun. Enn og aftur er því verið að ráðast að iðngreinum,“ segir í ályktuninni.

Þá gagnrýnir Samiðn tvískinnung stjórnvalda. „Menntamála- og menningarmálaráðherra talar um mikilvægi iðnnáms en á sama tíma er atvinnu- og nýsköpunarráðherra á þeirri vegferð að vega að löggildingu iðnaðarmanna. Það sýnir hversu ósamstíga stjórnvöld eru í þessum málaflokki.“

Að sögn Samiðnar er hér um brýnt neytendamál að ræða. Neytendur verði að geta gengið að því vísu að þjónusta iðnaðarmanna uppfylli gæðakröfur.

„Mikilvægt er að tryggja að þeir sem starfi á þessu sviði séu hæfir til að sinna þeim störfum og hafi lokið viðeigandi námi sem viðurkennt er af yfirvöldum. Það gefur augaleið að afleiðingar af óviðunandi þekkingu og hæfni til að vinna þau störf geta verið mjög alvarlegar,“ segir að lokum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert