Áhyggjuefni að flestum sé hafnað

Hilmar Harðarson, formaður Samiðnar.
Hilmar Harðarson, formaður Samiðnar. Ljósmynd/Aðsend

Formaður Samiðnar, sambands iðnfélaga, fagnar því að flestir umsækjendur á framhaldsskólastigi sækist eftir því að komast í starfsnám. Aftur á móti segir hann áhygguefni að flestum sé þar hafnað.

Umsóknir í starfsnám á vorönn 2021 voru 52,2% af heildarfjölda umsókna í framhaldsskóla en að sama skapi var höfnunarhlutfallið þar einnig hæst eða 19,7%, samkvæmt samantekt Menntamálastofnunar.

„Það er fagnaðarefni að flestir umsækjendur á framhaldsskólastiginu sækjast eftir því að komast í starfsnám en að sama skapi er það áhyggjuefni að þar er flestum hafnað. Hér þarf að gera betur og tryggja þeim sem hafa áhuga á starfsnámi tækifæri til að hefja sitt nám. Með starfsnámi er m.a. verið að tala um iðnnám,“ segir Hilmar Harðarson, formaður Samiðnar, sambands iðnfélaga, í tilkynningu.

Eldri nemar áhugasamari um starfsnám

Í umfjöllun Menntamálastofnunar kemur einnig fram að 1. mars 2021 var fjöldi nemenda í framhaldsskólum 20.989, þar af 6.689 í starfsnámi eða hartnær 30% af heildarfjöldanum.

„Áhugavert er að kryfja þessar tölur betur út frá kyni og aldurssamsetningu. Um 66,5% af nemendafjöldanum voru karlkyns á meðan 33,5% voru kvenkyns. Ef horft er til þeirra nemenda sem eru 16 ára og yngri voru rúm 70% af þeim aldurshópi sem stunduðu bóknám og einungis 14% voru í starfsnámi. Nokkrar breytingar verða á þessari samsetningu eftir því sem nemendurnir verða eldri og eykst þá ásókn í starfsnám. Til að mynda hækkar hlutfall þeirra sem stunda starfsnám í 36,9% í aldurshópnum 19-24 ára og fer í 71,9% í aldursbilinu 25 ára og eldri,“ bendir Hilmar á í tilkynningunni.

Velji sér starfsnám fyrr 

Hann segir að án efa séu nokkrar skýringar á því að eldri nemendur sæki fremur í starfsnám en bóknám. „Í samantekt Menntamálastofnunar kemur fram að þetta geti verið vísbending í þá veru að hluti nemenda hafi ekki unað sér á þeirri námsleið sem upphaflega var valin og fært sig síðar yfir í starfsnám,“ segir Hilmar.

„Samiðn tekur undir þær vangaveltur og telur ennfremur mikilvægt að leitað verði leiða til þess að þeir nemendur sem velja sér starfsnám á annað borð geri það fyrr á sinni skólagöngu. Slíkt myndi fela í sér aukna ánægju nemenda með að hafa fundið sína réttu hillu fyrr á lífsleiðinni og ekki síður meiri hagrænan ábata fyrir íslenskt samfélag,“ bætir hann við.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert