Komust af sjálfsdáðum út úr alelda bíl

Bíll varð alelda á Kleifaheiði í grennd við Patreksfjörð um …
Bíll varð alelda á Kleifaheiði í grennd við Patreksfjörð um miðnætti í nótt. Engin slys urðu á fólki en farþegarnir náðu að komast af sjálfsdáðum út úr bílnum. Ljósmynd/Aðsend

Tveir erlendir ferðamenn komust af sjálfsdáðum út úr bíl sínum er kviknaði í honum á Kleifaheiði nálægt Patreksfirði í nótt. Slökkvilið Patreksfjarðar fékk tilkynningu um eldinn á tólfta tímanum og sendi slökkvibíl á svæðið. 

Vel gekk að slökkva í bílnum en slæmt veður var …
Vel gekk að slökkva í bílnum en slæmt veður var á heiðinni. Ljósmynd/Aðsend

Fljótlega eftir að ferðamennirnir komu sér út úr bílnum átti annar bíll leið um heiðina og gat ökumaður gert viðbragðsaðilum viðvart. Ferðamennirnir voru þá orðnir blautir, kaldir og hraktir en slæmt veður var á heiðinni að sögn Davíðs Rúnars Gunnarssonar, slökkviliðsstjóra á Patreksfirði. Engin slys urðu á fólki en ferðamennirnir fengu aðhlynningu í sjúkrabíl.

Bíllinn varð fljótt alelda og er gjörónýtur. Davíð segir að vel hafi gengið að slökkva í bílnum eftir atvikum þrátt fyrir slæm skilyrði á heiðinni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert