Árekstur á gatnamótum Grensás og Suðurlandsbrautar

Árekstur varð á gatnamótum Grensásvegar og Suðurlandsbrautar um tvöleytið í dag.

Að sögn varðstjóra hjá slökkviliði höfuðborg­ar­svæðis­ins voru nokkrir fluttir af vettvangi en um minniháttar árverka er að ræða.

Bíll var dreginn af vettvangi og sinnir slökkviliðið nú hreinsunarstarfi. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert