Féll í sjóinn á Granda

mbl.is/Eggert

Maður féll í sjóinn niðri á Granda um klukkan hálfeitt í dag. Að sögn varðstjóra hjá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu er maðurinn kominn upp úr og er hann heill heilsu.

Einhver sem var í nágrenninu hjálpaði manninum upp úr sjónum og var hann kominn á þurrt land þegar slökkviliðið kom á vettvang.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert