Ölgerðin innkallar Hindberjagos og Helgu

Hindberjagos frá Öglu hefur verið í dreifingu í eftirfarandi verslunum; …
Hindberjagos frá Öglu hefur verið í dreifingu í eftirfarandi verslunum; Krónunni, Hagkaup, Fjarðarkaupum, Melabúðinni, verslunum Samkaupa (Iceland og Nettó) og fleiri smærri verslunum. Helga hefur verið í dreifingu í verslunum ÁTVR. Samsett mynd

Ölgerðin hefur ákveðið að innkalla Hindberjagos frá Öglu gosgerð 0,33l gler og Helgu 0,33l dós frá Borg brugghús. Þetta á við um allar framleiðslulotur af þessum vörum. Innköllun er hafin úr búðum.

Ástæða innköllunarinnar er ófullnægjandi merkingar á umbúðum þar sem drykkirnir geta hugsanlega innihaldið hnetur í snefilmagni, vegna krossmengunar við framleiðslu á hráefni sem notað er í báðar þessar vörur, að því er segir í tilkynningu frá Ölgerðinni

Viðskiptavinum sem eiga ofangreindar vörur er bent á að skila vörunni í þeirri verslun sem hún var keypt gegn endurgreiðslu eða skipti á samskonar vöru. Helga hefur verið í dreifingu í verslunum ÁTVR.

Hindberjagos frá Öglu hefur verið í dreifingu í eftirfarandi verslunum; Krónunni, Hagkaup, Fjarðarkaupum, Melabúðinni, verslunum Samkaupa (Iceland og Nettó) og fleiri smærri verslunum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert