Skjálfti reið yfir suðvesturhorn landsins rétt í þessu. Á vef Veðurstofunar segir að skjálftinn hafi verið 3,2 að stærð.
Undanfarnar tvær vikur hefur skjálftavirkni tekið sig upp að nýju í kvikuganginum sem liggur suðvestur af Keili. Líklegt má telja að skjálftinn hafi átt upptök sín þar.