Ásvallabraut opnar fyrir umferð í dag

Opnunin sjálf mun eiga sér stað við torgið á gatnamótum …
Opnunin sjálf mun eiga sér stað við torgið á gatnamótum Ásvallabrautar og Stuðlaskarðs í Skarðshlíð. Sjá rauðan hring á myndinni.

Ásvallabraut í Hafnarfirði, sem tengir samanbyggðasvæði sitt hvoru megin Ásfjalls, verður opnuð fyrir umferð klukkan hálf fjögur síðdegis í dag. 

Með brautinni verða Skarðshlíð og hverfin ofarlega á Völlum betur tengd Kaldárselsvegi og Reykjanesbraut, að því er fram kemur í tilkynningu frá Hafnarfjarðarbæ. 

Frá framkvæmdum við Ásvallabraut fyrir rúmu ári síðan.
Frá framkvæmdum við Ásvallabraut fyrir rúmu ári síðan. mbl.is/Sigurður Bogi

„Einnig mun Ásvallabraut þjóna byggingarsvæðum sem þegar eru í uppbyggingu; s.s. Hamranesi og þeim sem fyrirhuguð eru á svæðinu í náinni framtíð, þ.m.t. Áslandi 4 og Áslandi 5. Opnunin sjálf mun eiga sér stað við torgið á gatnamótum Ásvallabrautar og Stuðlaskarðs í Skarðshlíð,“ segir í tilkynningunni. 

Opnunin fer fram þannig að klippt verður á borða á upphafsstað. Í framhaldinu verður farið í samakstur milli þessara byggðasvæða/hverfa í Hafnarfirði. Að því loknu verður opnað fyrir alla umferð. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert