160.000 verða boðuð í örvunarbólusetningu

mbl.is/Kristinn Magnússon

Um 160.000 manns um land allt verða boðuð í örvunarbólusetningu fyrir áramót. Á höfuðborgarsvæðinu verður bólusett í Laugardalshöllinni á tímabilinu 15. nóvember til 8. desember á mánudögum, þriðjudögum og miðvikudögum.

Örvunarskammtar eru ætlaðir þeim sem þegar eru bólusettir og fengu síðari bóluefnaskammtinn fyrir a.m.k. fimm mánuðum. Fólk verður boðað með strikamerki sem send verða í smáskilaboðum (SMS). Þeir sem áður hafa fengið boð í bólusetningu en ekki  þegið hana, eru hvattir til að mæta, að því er heilbrigðisráðuneytið greinir frá. 

Allir sem geta ættu að láta bólusetja sig

„Bólusetningar við COVID-19 hafa skilað miklum árangri hér á landi. Framkvæmd bólusetninga gekk hratt og vel og almenn þátttaka var með því mesta sem þekkist meðal þjóða. Í nýrri samantekt embættis sóttvarnalæknis er fjallað um ávinning bólusetningar. Þar kemur fram að einstaklingur sem á í nánum samskiptum við Covid-smitaðan einstakling er 50% ólíklegri til að smitast hafi hann fengið fulla grunnbólusetningu en væri hann óbólusettur. Líkur á alvarlegum veikindum hjá bólusettum einstaklingi sem smitast eru jafnframt um fimmfalt lægri en hjá óbólusettum. Sá sem er bólusettur en smitast samt af Covid-19 er enn fremur mun ólíklegri til að smita aðra. Því ættu þeir sem enn hafa ekki verið bólusettir við Covid-19 að fara í bólusetningu hið fyrsta,“ segir ennfremur. 

Hvers vegna þarf örvunarskammt?

„Lönd sem náð hafa góðum árangri í bólusetningum með almennri þátttöku urðu fyrir miklum áhrifum af delta-afbrigði kórónuveirunnar í sumar. Ísraelar sem voru í fararbroddi í bólusetningum komust að raun um – og fengu staðfest með gögnum – að því lengri tími sem liðinn var frá því að einstaklingur fékk seinni bóluefnaskammtinn, því meiri líkur voru á að hann smitaðist af delta-afbrigðinu, samanborið við þá sem nýlega höfðu verið bólusettir. Þeir mæltu í kjölfarið með því að fólk fengi örvunarskammt af bóluefni Pfizer og benda rannsóknir til þess að þannig megi draga verulega úr líkum á smiti eða alvarlegum veikindum,“ segir einnig. 

Nánar er fjallað um þetta í samantekt sóttvarnalæknis.

Í samantekt sóttvarnalæknis segir m.a. „Góð þátttaka í örvunarbólusetningum gegn COVID-19, sambærileg við það sem var í grunnbólusetningum í vor, er forsenda þess að við náum tökum á útbreiðslunni nú í vetur án verulegra samfélagshafta.“ Örvunarbólusetning verður boðin öllum 16 ára og eldri þegar a.m.k. 6 mánuðir eru liðnir frá grunnbólusetningu

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert