Allir fimm eru í öndunarvél

Frá Landspítalanum.
Frá Landspítalanum. Ljósmynd/Landspítalinn

21 sjúklingur liggur á Landspítala vegna Covid-19. Fimm eru á gjörgæslu, allir í öndunarvél. Tveir af þessum fimm eru óbólusettir.

Meðalaldur þeirra sem liggja inni er 63 ár, að því er segir í tilkynningu. 

1.325 sjúklingar, þar af 414 börn, eru á Covid-göngudeild spítalans.

Frá upphafi fjórðu bylgju hafa 219 verið lagðir inn  á Landspítalann vegna kórónuveirunnar.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert