Heimsóknir leyfðar á Landspítala

Landspítalinn í Fossvogi.
Landspítalinn í Fossvogi.

Frá og með miðvikudeginum 15. desember verða leyfðar heimsóknir á Landspítala en 14 sjúk­ling­ar liggja nú inni vegna Covid-19.

Í tilkynningu á vef Landspítala segir að einn gestur megi heimsækja hvern sjúkling að hámarki í eina klukkustund á hverjum degi, innan skilgreinds heimsóknartíma. Æskilegt er að viðkomandi sé fullbólusettur.

Þá segir að næst verði heimsóknartakmarkanir endurskoðaðar 22. desember og metið hvort öruggt verði að slaka meira á fyrir hátíðirnar.

Stjórnendum deilda spítalans er þó áfram heimilt að gera allar nauðsynlegar undantekningar frá heimsóknarbanni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert