Áslaug Arna með kórónuveiruna

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, há­skóla-, iðnaðar- og ný­sköp­un­ar­ráðherra.
Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, há­skóla-, iðnaðar- og ný­sköp­un­ar­ráðherra. mbl.is/Árni Sæberg

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, há­skóla-, iðnaðar- og ný­sköp­un­ar­ráðherra, er með kórónuveiruna. Frá þessu greinir hún á facebooksíðu sinni.

Líkt og Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra fór hún einkennalaus í PCR-próf vegna ríkisstjórnarfundar og fékk jákvæða niðurstöðu.

Nú reynir á mig að hafa það náðugt með sjálfri mér næstu 10 daga. Ljóst er að smitin eru mörg en veikindin sem betur fer fátíðari. Ég vona að sá hópur sem ekki finnur fyrir þessum smitum fari stækkandi og á nýju ári getum við farið að horfa til eðlilegri tíma,“ skrifar Áslaug á Facebook.

 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert