Upplýsingar gætu hafa lekið í innbroti hjá Strætó

Strætó segir að þegar hafi verið gripið til aðgerða.
Strætó segir að þegar hafi verið gripið til aðgerða. mbl.is/Valli

Innbrot í netkerfi Strætó uppgötvaðist í gær. Frá þessu greinir byggðasamlagið í tilkynningu.

Segir þar að unnið sé að því að staðfesta hvernig atburðarásinni vatt fram og um leið sé verið að greina umfang innbrotsins, í samstarfi við sérfræðinga frá Syndis og Advania.

Atvikið hafi verið tilkynnt Persónuvernd, CERT-IS og lögreglu.

Of snemmt að segja til um

„Ekki er hægt að útiloka upplýsingaleka í tengslum við innbrotið, en of snemmt er að segja til um hvort og hvaða upplýsingar innbrotsþjófarnir komust yfir,“ segir í tilkynningunni.

„Nú þegar hefur verið gripið til allra aðgerða til að fyrirbyggja hættuna á frekari gagnalekum.“

Ítrekað er að Strætó sendi aldrei út tölvupósta þar sem fólk er beðið um kortaupplýsingar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert