Kona á níræðisaldri lést á Landspítalanum á gamlársdag vegna Covid-19.
Alls liggja 23 sjúklingar á Landspítala vegna Covid-19 og fjölgar um tvo frá í gær. Sjö eru á gjörgæslu, sex þeirra í öndunarvél, að því er fram kemur á vef spítalans.
7.023 sjúklingar eru á Covid-göngudeild spítalans, þar af 1.601 barn.