Ráðherra breytir reglum um sóttkví

Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra.
Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra. mbl.is/Kristinn Magnússon

Heilbrigðisráðherra hefur breytt reglum um sóttkví fyrir fólk sem er þríbólusett eða hefur verið bólusett tvisvar og smitast af kórónuveirunni.

Í tilkynningu frá Stjórnarráðinu segir að breyttar reglur eigi við um tvo hópa.

Annars vegar einstaklinga sem eru þríbólusettir og fengu síðustu sprautuna meira en 14 dögum áður en viðkomandi er útsettur fyrir smiti.

Hins vegar einstaklinga sem hafa jafnað sig af staðfestu Covid-smiti og eru jafnframt tvíbólusettir, að því gefnu að þeir hafi fengið síðari sprautuna meira en 14 dögum áður en þeir voru útsettir.

Mannamót og heilbrigðisstofnanir ekki í lagi

Breytingarnar eru á þann veg að viðkomandi er:

  • heimilt að sækja vinnu eða skóla og sækja sér nauðsynlega þjónustu, s.s. heilbrigðisþjónustu, fara í matvöruverslanir og lyfjabúðir og nota almenningssamgöngur,
  • óheimilt að fara á mannamót eða staði þar sem fleiri en 20 koma saman, nema í því samhengi sem nefnt er hér að ofan,
  • skylt að nota grímu í umgengni við alla nema þá sem teljast í nánum tengslum og gildir grímuskyldan einnig þótt hægt sé að halda tveggja metra fjarlægð,
  • óheimilt að heimsækja heilbrigðisstofnanir, þar með talin hjúkrunarheimili, nema með sérstöku leyfi viðkomandi stofnunar,
  • skylt að forðast umgengni við einstaklinga sem eru í aukinni hættu á alvarlegum veikindum ef þeir smitast af Covid-19.

Eru breytingarnar sagðar gerðar í samræmi við tillögur sóttvarnalæknis.

„Við þurfum að halda samfélaginu gangandi eins og framast er kostur, hvort sem við horfum til skólanna, velferðarþjónustu eða margvíslegrar atvinnustarfsemi og eins og staðan er núna eru þetta bráðnauðsynleg viðbrögð,“ er haft eftir Willum Þór Þórssyni heilbrigðisráðherra í tilkynningunni.

Gildir um þá sem eru þegar í sóttkví

Takmörkunum samkvæmt ofangreindum reglum lýkur ekki fyrr en með niðurstöðu PCR-prófs sem tekið er á fimmta degi sóttkvíar. Ef einstaklingur finnur fyrir einkennum smits einhvern tíma á þessu fimm daga tímabili á hann að undirgangast PCR-próf án tafar. Tími í sóttkví er aldrei skemmri en fimm dagar.

Reglugerðin var birt í Stjórnartíðindum síðdegis í dag og hefur þegar öðlast gildi og gildir um alla einstaklinga sem sæta sóttkví við gildistöku hennar.

Reglugerð um breytinguna hefur þegar tekið gildi.

Vísað til rannsókna

Tekið er fram að með þessu sé dregið úr takmörkunum á einstaklinga sem þurfa að sæta sóttkví ef þeir eru þríbólusettir gegn Covid-19. Um 160.000 einstaklingar séu nú þríbólusettir og því ljóst að breyttar reglur um sóttkví muni gjörbreyta stöðunni. Sama máli gegni um einstaklinga sem hafi jafnað sig af staðfestu smit og séu tvíbólusettir.

Vísað er til nýlegra rannsókna frá Bretlandi og Danmörku, sem sýni fram á að örvunarskammtur, eða alls þrír bóluefnaskammtar, dragi verulega úr líkum á smiti, sérstaklega af völdum Delta-afbrigðis kórónaveirunnar.

Örvunarskammtur minnki einnig verulega líkur á smiti af völdum Ómíkron, þótt bólusetning gegn Covid-19 veiti almennt minni vörn gegn Ómíkron en Delta.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert