Hönnun farsóttardeildar tilbúin

B1 deildin á Landspítalanum í Fossvogi er á jarðhæð í …
B1 deildin á Landspítalanum í Fossvogi er á jarðhæð í álmunni sem er næst á myndinni. Er hún talin vænlegasti kosturinn fyrir farsóttadeild með tilliti til staðsetningar og fyrir einangrun, en bæði er hægt að ganga inn á deildina frá miðjuhúsi sem og inn um inngang á hlið álmunnar. mbl.is/Jón Pétur

Hönnun nýrrar farsóttadeildar er tilbúin og áætlað er að hún verði á Landspítalanum í Fossvogi. Þetta staðfestir heilbrigðisráðherra, en hann segist ekki vita til annars en að vinna við deildina sé í fullum gangi og unnið sé samkvæmt áætlun um að framkvæmdum við deildina ljúki á 5-7 mánuðum.

Alþingi samþykkti nú í árs­lok fjár­fram­lög til opn­un­ar og rekst­urs far­sótt­ar­deild­ar á spít­al­an­um. Alls ríf­lega millj­arður á ár­inu 2022. Bæði heilbrigðisráðherra og sóttvarnalæknir hafa undanfarið talað um að stefnt sé að afléttingum allra sóttvarnaráðstafana á næstunni og sagði Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra á föstudaginn að m.v. stöðuna í dag gæti það orðið um næstu mánaðarmót.

Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra.
Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Er þá þörf á deild sem þessari núna?

„Já það var metið þannig að þörf væri á þessari deild og ég tel að það hafi ekki breyst,“ segir Willum í samtali við mbl.is og bætir við að uppbygging hennar og rekstur séu fjármögnuð á fjárlögum þessa árs.

Eins og mbl.is greindi frá í síðasta mánuði var gert ráð fyrir að deildin yrði staðsett á deild B1 í Fossvogi, en hún hýsir í dag sjúkraþjálf­un, iðjuþjálf­un, sál­gæslu (kap­ellu og skrif­stofu sjúkra­húsprests) og einnig dag­deild fyr­ir B7-deild­ina. Þar yrði bæði legu­deild og dag- og göngu­deild­arþjón­usta. Var horft til þeirrar staðsetningar m.t.t. einangrunar og aðgengis. Ekki var þó ljóst hvað yrði um þá þjónustu sem er þar fyrir.

Í framhaldinu ræddi mbl.is við yfirsjúkraþjálfara Landspítalans sem sagði að engine lausn lægi fyrir en að finna þyrfti pláss. Sagði hún erfitt að ímynda sér að starf­sem­in fær­ist í hús­næði utan Land­spít­al­ans í Foss­vogi enda sinni starfs­fólkið sjúk­ling­um sem þar liggi inni, eins og annað heil­brigðis­starfs­fólk sem þar starfar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert