Vann tæplega níu milljónir króna

Hvorki fyrsti né annar vinningur gengu út þegar dregið var út í Eurojackpot í kvöld. Færast vinningarnir því yfir á föstudag. 

Átta miðahafar, þeirra á meðal einn á Íslandi, skipta með sér 3. vinning eftir útdrátt kvöldsins og fær hver þeirra rúmlega 8,8 milljónir króna í sinn hlut. Hinir miðarnir voru keyptir í Noregi, Slóvakíu, tveir í Finnlandi og þrír í Þýskalandi. Íslenski miðinn var keyptur í Lottó-appinu. 

Þrír voru með annan vinning í Jóker og fær hver þeirra 100 þúsund krónur í sinn hlut. 

Fyrsti vinningur kvöldsins var tæplega 7,9 milljarðar og annar vinningur tæplega 390 milljónir króna. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert