Anna og Þráinn bjóða sig fram

Anna Hildur og Þráinn við púltið í fyrirlestrasalnum á sjúkrahúsinu …
Anna Hildur og Þráinn við púltið í fyrirlestrasalnum á sjúkrahúsinu Vogi. Ljósmynd/ SÁÁ

Anna Hildur Guðmundsdóttir formaður SÁÁ og Þráinn Farestveit varaformaður munu gefa kost á sér til að halda áfram á næsta aðalfundi samtakanna. Þau voru kosin 14. febrúar síðastliðinn til að leiða SÁÁ í framhaldi af umróti í stjórn samtakanna. 

Kosning fer fram á næsta aðalfundi SÁÁ um endurnýjun 16 fulltrúa í 48 manna aðalstjórn samtakanna. Aðalstjórn kýs síðan formann, varaformann og fulltrúa í framkvæmdastjórn.

Deilt um túlkun samninga við SÍ

Þökk sé góðum árangri í fjáröflunum SÁÁ, verða engar sumarlokanir í Von eða á Vík. 

Þá er einnig unnið að málalyktum vegna athugasemda Sjúkratryggigna við SÁÁ. 

 „Deilan snýst ekki um peninga, heldur túlkun samninga og útfærslur meðferðarstarfsins í heimsfaraldrinum. Við höfum átt í viðræðum við Sjúkratryggingar um að landa þessu þannig að allir geti gengið sáttir frá borði. Þetta er flókið mál og ekki útséð hvenær klárast. En það liggur fyrir að þessi ágreiningur hefur ekki áhrif á það traust sem SÁÁ nýtur hjá stjórnvöldum,“ segir í tölvupósti sem Anna Hildur sendi félagsmönnum í morgun.

Hún lýsir því yfir að mikil eindrægni hafi verið í framkvæmdastjórn samtakanna um starfsemina og þær hugmyndir um verkefni sem ráðast þurfi í til að mæta nýjum og breyttum áherslum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert