„Snúið“ mansalsmál í fullri rannsókn

Maðurinn og drengurinn komu til landsins með flugi frá Kaupmannahöfn.
Maðurinn og drengurinn komu til landsins með flugi frá Kaupmannahöfn. mbl.is/Ómar Óskarsson

Mál manns, sem er grunaður um mansal á ungum dreng, er í fullri rannsókn, að sögn Úlfars Lúðvíkssonar, lögreglustjóra á Suðurnesjum.

Maðurinn sætir ekki lengur gæsluvarðhaldi, heldur tilkynningaskyldu á grundvelli 114. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016.

„Þetta er snúið mál en það er í rannsókn og hefur sinn gang,“ segir Úlfar, spurður út í rannsóknina. Aðspurður segist hann ekki vilja greina frá þjóðerni mannsins og drengsins.

Komu saman frá Kaupmannahöfn

Grun­ur leik­ur á um að brotið hafi verið gegn drengnum kyn­ferðis­lega og hann beittur vanvirðandi meðferð. 

Þann 28. apríl hafði lög­regla af­skipti af karl­manni sem hafði ung­an dreng í för með sér. Þeir komu sam­an með flugi frá Kaup­manna­höfn og voru án ferðaskil­ríkja en karl­maður­inn fram­vísaði af­rit­um af ætluðum vega­bréf­um. 

L
L mbl.is/Kristinn Magnússon

Karl­maður­inn óskaði í fram­hald­inu eft­ir alþjóðlegri vernd fyr­ir sína hönd og drengs­ins. Hann kvaðst hafa verið á flakki um Evr­ópu í þrjú ár ásamt barn­inu og skilið það um tíma eft­ir hjá skyld­menn­um.

Þá fram­vísaði hann gögn­um til stuðnings heim­ild sinni til að ferðast með barnið, en lög­regla tel­ur skjalið ótraust og geta sér­fræðing­ar ekki full­yrt um áreiðanleika inni­haldsins, að því er fram kem­ur í dómi Héraðsdóms Suðurnesja, sem var staðfestur af Landsrétti. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert