Katrín Jakobsdóttir „allt önnur manneskja“

Séra Davíð Þór Jónsson sóknarprestur og Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra voru …
Séra Davíð Þór Jónsson sóknarprestur og Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra voru saman í sjö ár. Samsett mynd

Séra Davíð Þór Jóns­son, sókn­ar­prest­ur í Lauga­rnes­kirkju, telur hörð ummæli sín um þinglið og ráðherra Vinstri grænna ekki koma því við að formaður flokksins og forsætisráðherra, Katrín Jakobsdóttir, sé fyrrverandi sambúðarkona hans.

Hann hefur meðal annars kallað ríkisstjórn Katrínar fasistastjórn og sagt sérstakan stað í helvíti fyrir þinglið og ráðherra flokksins.

Lét hann ummælin falla vegna fyrirhugaðra brottvísana á 300 ein­stak­lingum.

Fyrir sex árum ræddi Davíð við Morgunblaðið um sambandið við Katrínu. Voru þau saman í sjö ár en sambandið endaði árið 2004.

„Í kjöl­farið á sam­bands­slit­un­um tók við eitt ár af hel­víti sem endaði í tár­um inni á Vogi. Ég var bara bú­inn á því. Og síðan þá hef ég verið að byggja upp líf mitt á nýj­um for­send­um,“ sagði Davíð meðal annars við Morgunblaðið.

Skoðar stöðu sína

Líkt og mbl.is hefur greint frá hefur Agnes M. Sig­urðardótt­ir, bisk­up Íslands, veitt Davíð form­legt til­tal vegna um­mæla sem hann lét falla um rík­is­stjórn Katrín­ar.

Davíð segir að hann muni ræða við félaga sína Prestafélagi Íslands um stöðu sína á næstu dögum.

„Ég mun ræða við mitt fólk hjá Prestafélagi Íslands um það í hvaða stöðu ég er settur. Það mál er á það viðkvæmu stigi að það væri óskynsamlegt að tala mikið um það í fjölmiðlum fyrr en að loknum þeim samtölum.“

Bjó aldrei með forsætisráðherra

Það hefur vakið athygli að þið Katrín Jakobsdóttir voruð einu sinni par. Hafa þessi ummæli þín eitthvað með það að gera?

„Vitur maður mælti forðum, það eru skiptar skoðanir um nákvæmlega hver það var en hann sagði: stórar sálir tala um hugmyndir, miðlungs sálir tala um atburði, smásálir tala um persónur.

Umræðan ætti að snúast um það hvernig við sem samfélag komum fram við okkar minnstu bræður og systur. Ef að einhverjum finnst að sú umræða eigi að snúast um það hvernig tilfinningalífi mínu var háttað fyrir 20 árum…jah þá vitum við hversu stór sálin í því fólki er,“ segir Davíð og bætir við:

„Þar fyrir utan þá bjó ég aldrei með forsætisráðherra Íslands, það var allt önnur manneskja.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert