Íslendingur vann 10 milljónir í EuroJackpot

Íslendingurinn var einn af sjö vinningshöfum.
Íslendingurinn var einn af sjö vinningshöfum. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Heppinn Íslendingur hreppti rúmar 10 milljónir í EuroJackpot í gær en hann var einn af sjö einstaklingum sem deildu þriðja vinningi. 

Fyrsti vinningurinn gekk ekki út í gær en hann nam 5,7 milljörðum króna. Annar vinningurinn fór til einstaklings sem keypti miða í Þýskalandi, en hann nam 124.636.280 krónum.

Þá var heldur enginn með allar fimm jókertölurnar réttar í réttri röð. Einn var þó með fjórar jókertölur réttar og í réttri röð.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert