Endurvekja ungliðahreyfingu

Diljá Mist Einarsdóttir verður fundarstjóri.
Diljá Mist Einarsdóttir verður fundarstjóri. mbl.is/Hákon

Fyrsti opni fundur nýstofnaðrar ungliðanefndar Varðbergs, samtaka um vestræna samvinnu og alþjóðamál, verður haldinn í Háskólanum í Reykjavík í dag. Fundurinn ber yfirskriftina Staða varnar- og öryggismála á Íslandi og hefst klukkan 17.

Ekki hefur verið starfandi ungliðahreyfing innan félagsins frá því að Varðberg og Samtök um vestræna samvinnu sameinuðust árið 2010 en áður var starfandi ungliðahreyfing innan Varðbergs.

Aukinn áhugi

Frá því að stríð braust út í Evrópu hefur áhugi ungs fólks á varnarmálum, ekki síst varnarmálum Íslands, aukist umtalsvert. Þetta lýsti sér til að mynda í góðri þátttöku ungra í NATO-skóla Varðbergs sem haldinn var í fyrsta sinn í langan tíma í vetur.

Til að bregðast við auknum áhuga hefur ungliðanefnd innan Varðbergs hafið virk störf og undirbúið stofnun ungliðahreyfingar félagsins.

Á fundinum mun Geir Ove Øby, fulltrúi í Atlatshafsbandalaginu, halda framsöguerindi um viðbrögð bandalagsins við innrás Rússa í Úkraínu og setja í samhengi við varnarmál á Íslandi.

Í pallborði verða, auk Geirs, Baldur Þórhallsson, Björn Bjarnason og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir. Diljá Mist Einarsdóttir verður fundarstjóri.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert