Mynduðu brot 305 ökumanna á fimm dögum

Lögreglan að störfum.
Lögreglan að störfum. Ljósmynd/Lögreglan

Brot 305 ökumanna voru mynduð á Breiðholtsbraut í Reykjavík frá fimmtudeginum 23. júní til mánudagsins 27. júní, að því er kemur fram á vef lögreglunnar.

Kemur fram að fylgst hafi verið með ökutækjum sem var ekið Breiðholtsbraut í austurátt, á gatnamótum við Stekkjarbakka.

Mældist á 106 km/klst.

Á tæplega fjórum sólarhringum fóru 23.445 ökutæki þessa akstursleið og því óku hlutfallslega mjög fáir ökumenn of hratt eða yfir afskiptahraða.

Meðalhraði hinna brotlegu var 79 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 106. Þá var tveimur ökutækjum ekið gegn rauðu ljósi á umræddu tímabili.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert