Ökumaður í banaslysi grunaður um ölvun

Banaslys varð á Meðallandsvegi á Suðurlandi aðfaranótt föstudags. Ökumaður er …
Banaslys varð á Meðallandsvegi á Suðurlandi aðfaranótt föstudags. Ökumaður er grunaður um ölvunarakstur. Ljósmynd/Lögreglan

Ökumaður sem slapp ómeiddur úr banaslysi á Meðallandsvegi aðfaranótt föstudags er grunaður um ölvun.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglu.

Í tilkynningunni segir að farþegi í jeppabifreið hafi látist þegar bifreiðinni var ekið út af Meðallandsvegi í Skaftárhrepp. Tveir farþegar voru fluttir alvarlega slasaðir með þyrlu til Reykjavíkur en eru á batavegi.

„Málið er í hefðbundnum rannsóknarferli en að þeirri rannsókn kemur auk lögreglu á Suðurlandi, m.a. með aðstoð sérfræðings í rannsóknum ökutækja, tæknideild lögreglu höfuðborgarsvæðisins. Upplýsingar um einstaka rannsóknarþætti verða ekki gefnar á meðan á rannsókninni stendur,“ segir í tilkynningunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert