2500 skjálftar síðan í gær

Fagradalsfjall.
Fagradalsfjall. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Tæplega 700 skjálftar hafa mælst á Reykjanesskaganum síðan á miðnætti. Flestir voru þeir á svæðinu norðaustan Fagradalsfjalls þar sem jarðskjálftahrina hófst um hádegi í gær. Alls eru skjálftarnir því orðnir 2500 frá því í gær.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Veðurstofu Íslands.

Skjálftavirkni róaðist töluvert eftir kl. 19 í gærkvöldi og var stöðug þar til um kl. 3.15 í nótt þegar hún tók aftur kipp í rúman klukkutíma og róaðist svo aftur.

Stærsti í nótt var 4,2

Þá var stærsti skjálfti næturinnar kl. 04.06, 4,2 að stærð, og var hann staðsettur rétt utan við Litla Hrút.  

Stærstu skjálftar hrinunnar í gær voru 4,4 og 4,3 að stærð. Annar þeirra var kl. 16.52 og hinn kl. 20.48.

Klukk­an þrjú í gær var til­kynnt um óvissu­stig al­manna­varna vegna skjálfta­hrin­unn­ar.

„Engin merki gosóróa hafa sést á mælum Veðurstofunnar né nokkur önnur merki um að eldgos sé hafið eða yfirvofandi eins og er,“ kemur jafnframt fram í tilkynningu Veðurstofunnar.

Áfram verður hægt að fylgj­ast með beinu streymi í vef­mynda­vél­um mbl.is af gosstöðvun­um í Fagra­dals­fjalli. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert