Ein líkamsárás í Eyjum í nótt

Fjöldinn náði hámarki þegar brekkusöngurinn fór fram.
Fjöldinn náði hámarki þegar brekkusöngurinn fór fram. mbl.is/ Óskar Pétur Friðriksson

Einungis einn var vistaður í fangageymslu í Vestmannaeyjum í nótt. Ein líkamsárás var skráð hjá lögreglu, en átta fíkniefnamál. Í öllum fíkniefnamálum var um minniháttar mál að ræða.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni í Vestmannaeyjum. 

Tvö minniháttar slys urðu þó í nótt, sem skráð voru hjá lögreglu. Í báðum tilfellum urðu þau við það að viðkomandi skrikaði fótur og féll í jörðina. Hvorugur meiddist alvarlega. 

Fjöldinn náði hámarki undir miðnætti í gærkvöldi þegar brekkusöngur fór fram í Herjólfsdal. 

Hvetja ökumenn til að blása í áfengismæla

Herjólfur hóf að flytja þjóðhátíðargesti upp á land klukkan tvö í nótt. Mun ferjan sigla þétt milli lands og Eyja í allan dag og fram á nótt. 

Lögregla hvetur ökumenn til að gæta vel að því að aka ekki af stað fyrr en allt áfengi er farið út blóði. Lögreglumenn verða með áfengismæla á ferð, bæði í Vestmannaeyjum og í Landeyjahöfn í dag. Eru ökumenn hvattir til að nýta sér það áður en þeir aka af stað út í umferðina.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert