Sveitarfélagið fær nafnið Langanesbyggð

Þórshöfn í Langanesbyggð.
Þórshöfn í Langanesbyggð. mbl.is/Líney Sigurðardóttir

Nýtt sameinað sveitarfélag Langanesbyggðar og Svalbarðshrepps mun heita Langanesbyggð. 

Var tillaga þess efni samþykkt á sveitarstjórnarfundi hins sameinaða sveitarfélags í gær, þann 11. ágúst. 

Í tilkynningu frá sveitarfélaginu segir að ákvörðunin sé í samræmi við niðurstöður úr skoðanakönnun meðal íbúa sem haldin var fyrr í sumar. 

Sauðkind bætist við byggðamerkið

Þá var einnig samþykkt nýtt byggðamerki fyrir sveitarfélagið og var það merki fyrir valinu sem fékk flest atkvæði í skoðanakönnun meðal íbúa. 

Höfundur hins nýja byggðamerkis er Steinbjörn Logason, grafískur hönnuður. 

„Ég er ánægður með að okkar nýlega sameinaða sveitarfélag sé komið með nafnið Langanesbyggð. Eins er nýtt byggðamerki vel valið en þar var íslensku sauðkindinni bætt við fiskinn og fuglinn sem fyrir voru á byggðamerki Langanesbyggðar. Byggðirnar í sameinuðu sveitarfélagi eru við Langanes og nærumhverfi og nafnið því lýsandi fyrir okkar góða kauptún á Þórshöfn og nærsveitirnar við Þistilfjörð og Bakkafjörð,“ er haft eftir Sigurði Þór Guðmundssyni, oddvita Langanesbyggðar. 

Tækifæri framundan í ferðaþjónustu

Þá segir hann sameiningarvinnuna hafa staðið yfir síðustu mánuði og sú vinna muni halda áfram. 

„Í Langanesbyggð er öflugð atvinnulíf á sviði sjávarútvegs og landbúnaðar. Í okkar sveitarfélagi er gott mannlíf og ég tel ýmis tækifæri framundan – ekki síst á sviði ferðaþjónustu þar sem við höfum mikla möguleika horft til framtíðar.“

Nýtt byggðamerki sveitarfélagsins.
Nýtt byggðamerki sveitarfélagsins. Mynd/ Langanesbyggð
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert