„Í anda stjórnarsáttmála“ að hlýða ákallinu

Jón Gunnarsson dómsmálaráðherra mun leggja fram frumvarp um breytingar á …
Jón Gunnarsson dómsmálaráðherra mun leggja fram frumvarp um breytingar á lögum um útlendinga í fimmta sinn á haustþingi Alþingis mbl.is/Eggert Jóhannesson

Hópur, sem skipaður er af íslenskum samtökum, stofnunum og góðgerðafélögum, óskar eftir samráði við gerð frumvarps til breytinga á lögum um útlendinga og skorar hann á ríkisstjórnina að skipa starfshóp með fulltrúum hagsmunaaðila í málaflokknum svo hægt verði að ná faglegri sátt við breytingu laganna.

Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá hópnum.

„Nú liggur fyrir að Jón Gunnarsson, dómsmálaráðherra, muni leggja fram frumvarp um breytingar á lögum um útlendinga í fimmta sinn á haustþingi Alþingis og mun frumvarpið vera eitt af fyrstu þingmálunum.

Hinn 19. maí sl. lýsti mikill meirihluti undirritaðra aðila yfir áhuga og vilja á því að koma á samráði og samvinnu um mótun laga í málaflokknum en án árangurs. Líkt og fram kom í viljayfirlýsingunni er nauðsynlegt að útlendingalöggjöfin verði þróuð áfram af ábyrgð og raunsæi til framtíðar,“ segir í tilkynningunni.

Í anda stjórnarsáttmálans

Telur hópurinn mikilvægt að auka traust og gagnsæi um ákvarðanir útlendingayfirvalda, sem og móta skýra og heildstæða stefnu í málaflokknum, til að tryggja vítæka sátt, „enda væri það í anda stjórnarsáttmála núverandi ríkisstjórnar og markmiða hennar.“

Í umsögnum um fyrri útgáfu frumvarpsins lýstu umsagnaaðilar úr hópnum yfir skorti á samráði við gerð frumvarpsins auk verulegra vankanta á efni þess. Í tilkynningunni segir að áríðandi sé að mikilvægar lagabreytingar í málaflokknum séu unnar í samráði og samtali við aðila sem starfa við málaflokkinn og hafa til þess sérþekkingu og reynslu. 

„Við vinnslu frumvarpsins sem lagt var fram í vor var lítið horft til þess en núgildandi lög um útlendinga sem tóku gildi í upphafi árs 2017 voru unnin í þverpólitísku og þverfaglegu samráði við hagaðila í málaflokknum. Mikilvægt er að verndarkerfið sé í stakk búið til að mæta þeim aðstæðum sem uppi eru hverju sinni en það er ekki síður mikilvægt að breytingar séu unnar í sátt og samráði við fagaðila,“ segir í tilkynningunni.

Í ljósi framangreinds óskar hópurinn eftir því að samráð verði haft við alla þá hagsmunaaðila sem að málaflokknum koma, áður en lögin hafa verið mótuð og skrifuð, svo lögin tryggi að réttindi þeirra sem sækja um alþjóðlega vernd séu vernduð í hvívetna. 

Eftirfarandi undirrituðu yfirlýsinguna:

  • Geðhjálp
  • Hjálparstarf kirkjunnar
  • Íslandsdeild Amnesty International
  • Þjóðkirkjan
  • Kvenréttindafélag Íslands
  • Landssamtökin Þroskahjálp
  • Mannréttindaskrifstofa Íslands
  • Rauði krossinn á Íslandi
  • Samtökin ´78
  • Siðmennt
  • Solaris – hjálparsamtök fyrir hælisleitendur og flóttafólk á Íslandi
  • UNICEF á Íslandi
  • UN Women á Íslandi
  • Öryrkjabandalag Íslands, ÖBÍ
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert