„Settu ljótan svip á leikinn“

Víkingur fagnaði sigri á laugardag.
Víkingur fagnaði sigri á laugardag. mbl.is/Óttar

Knattspyrnufélagið Víkingur harmar mjög framkomu einstakra stuðningsmanna sem settu ljótan svip á leikinn. Hátt í 3000 stuðningsmenn Víkings voru á leiknum sem nær allir hegðuðu sér óaðfinnanlega en nokkur skemmd epli settu ljótan blett á frábæra stuðningsmannasveit.

Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá félaginu. 

Hún er svohljóðandi:

„Í kjölfar glæsilegs sigurs Víkings í Mjólkurbikarkeppni KSÍ, þriðja árið í röð, hefur komið upp neikvæð umræða um framkvæmd leiksins og hegðun stuðningsmanna.

Knattspyrnufélagið Víkingur harmar mjög framkomu einstakra stuðningsmanna sem settu ljótan svip á leikinn. Hátt í 3000 stuðningsmenn Víkings voru á leiknum sem nær allir hegðuðu sér óaðfinnanlega en nokkur skemmd epli settu ljótan blett á frábæra stuðningsmannasveit. Félagið hefur óskað eftir myndum og upptökum úr öryggiskerfi vallarins í þeim tilgangi að ná tali af þessum mönnum.

Öll gæsla á leiknum var í höndum Knattspyrnusambandins og komu félögin ekki að því.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert