Beint: Landssamráðsfundur gegn ofbeldi

Ljósmynd/Colourbox

Fyrsti landssamráðsfundurinn um aðgerðir gegn ofbeldi og afleiðingum þess verður haldinn í dag á Grand hóteli. Meginþemu fundarins eru ofbeldi meðal barna og ungmenna og þverfaglegt samráð gegn heimilisofbeldi, kynferðisofbeldi og kynbundnu ofbeldi. Fundurinn er í beinu streymi á mbl.is. 

Dagskrá fundarins er aðgengileg hér. 

Fram kemur í tilkynningu að markmiðið með fundinum sé að gefa fulltrúum ríkis, sveitarfélaga, frjálsra félagasamtaka, rannsóknastofnana og annarra sem láta sig þessi mál varða tækifæri til að bera saman bækur sínar, kynna nýjungar, niðurstöður rannsókna og koma á framfæri tillögum til úrbóta með það að markmiði að draga úr og koma í veg fyrir ofbeldi. Landssamráðsfundur er ein þeirra aðgerða sem finna má í þingsályktun um áætlun um aðgerðir gegn ofbeldi og afleiðingum þess fyrir árin 2019 til 2022.

Að loknum vinnustofum verða pallborðsumræður þar sem brugðist verður við því sem fram hefur komið. Í pallborði verða:

  • Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra
  • Jón Gunnarsson dómsmálaráðherra
  • Ásmundur Einar Daðason barnamálaráðherra
  • Sigríður Björk Guðjónsdóttir ríkislögreglustjóri
  • Sigríður Friðjónsdóttir ríkissaksóknari
  • Guðríður Bolladóttir, settur umboðsmaður barna

Landssamráðsfundurinn er haldinn að undirlagi Guðmundar Inga Guðbrandssonar félags- og vinnumarkaðsráðherra og heldur hann opnunarávarp auk þess sem hann slítur fundi. Ríkislögreglustjóri sér um skipulagningu og framkvæmd fundarins og vinnustofur eru skipulagðar í samvinnu við Lögregluna á Akureyri, Háskólann á Akureyri, Lögregluna á Suðurlandi og Björgunarmiðstöðina á Selfossi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert