Samningur til styrktar VERU undirritaður

Guðrún Björg Ágústsdóttir hjá Foreldrahúsum og Ásmundur Einar Daðason, mennta- …
Guðrún Björg Ágústsdóttir hjá Foreldrahúsum og Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra. Ljósmynd/Stjórnarráðið

Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra, skrifaði í dag undir samning til styrktar VERU og snýr að stuðningi við börn sem eru þolendur ofbeldis eða sem beita ofbeldi. 

Vera er úrræði Foreldrahúss fyrir börn í áhættuhegðun en stuðningurinn er liður í aðgerðum stjórnvalda til að sporna gegn ofbeldi go samþætta þjónustu í þágu farsældar barna, þetta kemur fram í tilkynningu á vef Stjórnarráðsins.

„VERA er heildstætt langtíma meðferðarúrræði fyrir unglinga sem neyta fíkniefna. Foreldrasamtökin Vímulaus æska eru landssamtök sem hafa rekið Foreldrahús frá árinu 1999. Foreldrahús býður uppá víðtæka þjónustu fyrir alla fjölskylduna. Þar starfa vímuefna- og fjölskyldufræðingar, listmeðferðafræðingur og uppeldis- og sálfræðiráðgjafi,“ segir í tilkynningunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert